Songtexte.com Drucklogo

Landsímalína Songtext
von Spilverk þjóðanna

Landsímalína Songtext

Það voru hjón á Vestfjörðum
Sem hétu Þorvaldur og Lína
Áttu fyrir skuldunum
Og allt var í þessu fína

Valdi hann var skafari
Lína vann í pökkuninni
Svo fengu bæði nóg af því
Vildu′ í burtu af mölinni

Ekki samt í sveitina
Nei, þau fluttu beint á bikið
Nú er Lína í Hraunbænum
Og fílar sig sko ekki mikið

Landsímalína með símreikningana sína
Landsímalína
Hringir vestur oft á dag


Hún saknar fjallanna og kallanna við hjallana sem voru alltaf að skjalla' hana
Fuglanna og bátanna, vinkvennanna og allra tíu dropanna
Mannfjöldinn og menningin, bíóin og bíngóin
Hagkaupin og félagsmálastofnunin
Megna ekki að kæta′ hana

Landsímalína með símreikningana sína
Landsímalína
Hringir vestur oft á dag

Húsmóðir í Hraunbænum
Sól í heiði, liðin Góa
Stendur hljóð á svölunum
Og skimar út á Faxaflóa

Svo grípur hún um símtólið
Númerið byrjar á níu
Hringir í kaupfélagið
Og biður um Ólafíu

Landsímalína með símreikningana sína
Landsímalína
Landsímalína með símreikningana sína
Landsímalína
Lína!

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Fans

»Landsímalína« gefällt bisher niemandem.