Vökvar ekki blóm með bensíni Songtext
von Bubbi Morthens
Vökvar ekki blóm með bensíni Songtext
Þú vökvar ekki blóm með bensíni
Í þrumuveðri rósa rignir myrkri
Þú fæddist í lífsins ljósi
Lífið hélt á þér í hendi styrkri
Þú fréttir hjá fjöldanum að sök þín
Fyrnist aldrei né mun týnast
Og nafn þitt færðu aldrei aftur
Þú sérð bros en enginn er að grínast
Ástin verður aldrei samt hrakin
Úr hjörtum manna né nakin
Sett á forsíður eingöngu til að sýna
Að þess fordæmda bíður pína
Þú ert á meðal vor en enginn sér þig
Allir vinirnir hljóðlega hverfa
Sólin lokar augum neitar að skína
Á þig og skömmina börn þín erfa
Í þrumuveðri rósa rignir tárum
Þú vökvar ekki hjartað með lygi
Kærleikur og samúð og samkennd
Er þín eina leið þinn himnastígi
Í þrumuveðri rósa rignir myrkri
Þú fæddist í lífsins ljósi
Lífið hélt á þér í hendi styrkri
Þú fréttir hjá fjöldanum að sök þín
Fyrnist aldrei né mun týnast
Og nafn þitt færðu aldrei aftur
Þú sérð bros en enginn er að grínast
Ástin verður aldrei samt hrakin
Úr hjörtum manna né nakin
Sett á forsíður eingöngu til að sýna
Að þess fordæmda bíður pína
Þú ert á meðal vor en enginn sér þig
Allir vinirnir hljóðlega hverfa
Sólin lokar augum neitar að skína
Á þig og skömmina börn þín erfa
Í þrumuveðri rósa rignir tárum
Þú vökvar ekki hjartað með lygi
Kærleikur og samúð og samkennd
Er þín eina leið þinn himnastígi
Lyrics powered by www.musixmatch.com