Songtexte.com Drucklogo

Eina nótt í viðbót Songtext
von Bubbi Morthens

Eina nótt í viðbót Songtext

Eina nótt í viðbót, opnaðu gluggann
Hleyptu stjörnunum inn.
Ég ætla að vaka, fá að horfa á skuggann
Láta eins og það sé skugginn þinn
Láta eins og það sé skugginn þinn.

Ég fæddist ekki til að missa þig
Særa þig eða hryggja þig.
Því ég þrái
ég þrái þig svo sárt
Því ég þrái
ég þrái þig svo sárt.

Í dögun brotna skuggarnir
Dagurinn sópar brotunum burt.
Mér sýnist þeir gráta, gluggarnir.
Hvaðan fá þeir tárin? er spurt
Hvaðan fá þeir tárin? er spurt.


Ég fæddist til að elska þig
Hugga þig og knúsa þig.
Því ég þrái
ég þrái þig svo sárt
Því ég þrái
ég þrái þig svo sárt.

Og ég fæddist ekki
Til að vona
Að þú sem kona
Yrðir ekki mín.
Því ég þrái
ég þrái þig svo sárt
Því ég þrái
ég þrái þig svo sárt.

Ég bíð eftir að á deginum verði slökkt
Að tíminn komi til mín.
Þeir segja hann flakka um veröldina með síamskött
Sem eitt sinn var ástmaður þinn
Pa, da, pa, da, pa, dam
Sem eitt sinn var ástmaður þinn
Pa, da, pa, da, pa, dam
Sem eitt sinn var ástmaður þinn.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Fans

»Eina nótt í viðbót« gefällt bisher niemandem.