Songtexte.com Drucklogo

Stúdentshúfan Songtext
von Bjartmar Guðlaugsson & Pétur Kristjánsson

Stúdentshúfan Songtext

Þegar fyrirmyndarbarnið hætti að læra heima
Og skellti sér með dúndurkrafti í trukkið
Þá fyrirmyndarforeldarnir reyndu því að gleyma
Og helltu sér með sama krafti í sukkið

Svekkt og sár, hún mútta fellir tár
Það verður engin stúdentshúfa′ í ár

Og fyrirmyndarforeldrarnir fengu sér í staupið
Og töluðu með tilfinningu um barnið
Já, til hvers var nú púlað og til hvers var nú hlaupið
Og hver á nú að fara út með skarnið

Svekkt og sár, hún mútta fellir tár
Það verður engin stúdentshúfa' í ár


Og fyrirmyndabarnið gerðist geðtruflað í háttum
Og skellti sér í slorið til að vinna fyrir sér
Og félagsmálaráðgjafinn reyndi að koma′ á sáttum
Sagði: Krakkafíflið hló bara og gerði grín að mér

Svekktur, sár, hann fellir fílatár
Það verður engin brauðterta í ár

Nei það var ekki svona þegar pabbi þinn var ungur
Þá Mogadon var notað til að róa strekkta sál
Og allir nefndir Haunkbellir, ræflar eða gungur
Sem ekki voru bjargálna og ræktuðu sitt mál

Svekkt og sár, hún mútta fellir tár
Það verður engin stúdentshúfa í ár
Það verður engin stúdentshúfa
Það verður engin brauðterta
Það verður engin stúdentshúfa í ár

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Bjartmar Guðlaugsson & Pétur Kristjánsson

Fans

»Stúdentshúfan« gefällt bisher niemandem.