Songtexte.com Drucklogo

Fyrst var ekkert Songtext
von Þursaflokkurinn

Fyrst var ekkert Songtext

Fyrst var ekkert
En svo
Komst þú
Á vængjum yfir flóann
Og þá kom Ragnar
Og einhver
Með honum, jú...
Æ hvað heitir hann?
...ég man það ekki.

Ég var fullur
Af öllu
Og þú
Varst tóm af því sama
Öli, eitri, öli.


Fífan fokin
Rigning um haust
Það hafði rignt allt sumarið líka
Og Ragnar
Rokinn
Og æ hvað heitir hann nú?
Örn, Arnar, Ernir.

Snjóa tók
Í fjöll og firði
Friður ríkti
Heilög jól
Og ekkert spurðist
Enginn spurði
Ekkert spurðist til Ragnars.

(Við misstum eitthvað
Fáum annað í staðinn
Söknum því einskis,
Einskis nei
Við munum samt ef
Það skiptir þá máli
Að hann fór
Um 5 leytið).


Þá gerðist það
Er við keyptum
Bílinn, hvíta húsið
Og brúnan stól
Áttum ákaviti og
Eitthvað á dósum
Og Ragnar kom
Við báðum hann að koma
Fagnandi
"Mikið höfðum við saknað hans"
Hann þakkaði,
Þakkaði, en tók fram
Að þetta yrði stuttur stans
-Stuttur stans.

Hann fyllti glas
Og aftur í glas
Saup
Söng, ældi
Enn í glas
Og meir í glas
Svaf, öskraði og vældi.

Og daginn eftir
Var vorið komið
Á vængjum yfir flóann
Það rökkvaði
Það birti af degi
Og börnin grétu,
Þau grétu
Af því að seríósið
Var búið.

(Við misstum eitthvað
Fáum annað í staðinn
Söknum því einskis,
Einskis nei
Við munum samt ef
Það skiptir þá máli
Að hann fór
Um 5 leytið).

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Þursaflokkurinn

Quiz
In welcher Jury sitzt Dieter Bohlen?

Fans

»Fyrst var ekkert« gefällt bisher niemandem.