Songtexte.com Drucklogo

Rökkur Songtext
von Sólstafir

Rökkur Songtext

Úr barmafullum bikarnum, hann dreypti af
Bjóst við átökum og bráðin væri þar
Fikraði sig nær í mannskóginum fær
Fingurnir gældu við stofna undir pilsi niðri í hæl

Ilmur tælir dýrið, hið illa nálgast ört
Inn í veiði lendum alltaf er nóg af æti út í mörk

Klær á öxlum og kuldahrollur læðist að
Ó, kveikir samt þá loga sem leika við nára og aftur á bak
Dansinn hann þá gengur frá degi þar til nótt
Ó, djöfullin laumar kossi og á engil sækir sótt

Minnig morkin af eitri, sem hann þá gaf
Mærin lögð niður á meðan hann gerði það
Ljóta sagan um ljúfa dys sem brann
Laut þar undan púkanum sem hvítan svaninn fann
Aurinn, blautur andardráttur sársaukinn hann er
Auðveldast væri að kveðja andann en í sorgina hún fer


Klær á öxlum og kuldahrollur læðist að
Ó, kveikir samt þá loga sem leika við nára og aftur á bak
Dansinn þá hann gengur frá degi þar til nótt
Djöfullin laumar kossi og á engil sækir sótt

Bundinn er nú besta skinn við blautan þrælsótta
Bítur, klórar, kastast um endalokin móta
Eftir situr ein og grá er rádýrið fer á stjá
Eins og eldur í sinum hann finnur þær og svíður

Hjálpaðu mér heilagur að finna vopn í mína hönd
Hörð mun hefndin verða sigtuð verður jörð
Karlynjan kreppti hnefa höggin, dundu óð
Skorin af kyndillinn, afvopnaður rauðum polli stóð

Klær á öxlum og kuldahrollur læðist að
Ó, kveikir samt þá loga sem leika við nára og aftur á bak
Jötnar héldu á Júdasi í vagninn leiðin lá
Jarðaður í votri gröf norðan Reistará


Ég mun ætíð finna þig
Reynir þú að vinna mig
Ég mun ætíð finna þig
Reynir þú að vinna mig
Ég mun ætíð finna þig
Reynir þú að vinna mig
Ég mun ætíð finna þig
Reynir þú að vinna mig
Ég mun ætíð finna þig
Reynir þú að vinna mig
Ég mun ætíð finna þig
Reynir þú að vinna mig
Ég mun ætíð finna þig
Reynir þú að vinna mig
Ég mun ætíð finna þig
Reynir þú að vinna mig

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Quiz
Wer ist gemeint mit „The King of Pop“?

Fans

»Rökkur« gefällt bisher niemandem.