Songtexte.com Drucklogo

Ýdalir Songtext
von Skálmöld

Ýdalir Songtext

Ýdalir standa við endalaust fljót,
Ullur þá reisti og byggði.
Fjallgarður skýlir og fjörður í mót,
Fallegt hvert strá, sérhver þúfa og grjót.
Þúsundir búa og þakka hvert dægur,
Þjóð sinni hamingju tryggði.
Ullur er guðlegur, fagur og frægur,
Forgöngumaður og dómari vægur.


Bundin að engu þar bjuggu í friði,
Bændur sem enginn styggði.
Ræktuðu landið og rótgróna siði,
Ríkti þar Ullur með fylgdarliði.
Rænt hefur Ýdölum Níðhöggur nú,
Nístandi grætti og hryggði.
Runnu þau öll yfir brennandi brú,
Börnin í ofboði, Ullur og hjú.

Ýdalir standa við endalaust fljót,
Ullur þá reisti og byggði.
Fjallgarður sviðinn, um fjörð liggur sót,
Fallið hvert strá, sérhver þúfa og grjót.
Flaug yfir hljóðlátur, fólkið í bóli,
Feigðin á borgina skyggði.
Vakti þau óður með ísköldu góli,
Ullur þá flúði af höfðingjastóli.

Finndu þeim skjól, sonur Sifjar,
Sorfinn í tímann skurður.
Vega þær vandlega klyfjar,
Verðandi, Skuld og Urður.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Skálmöld

Fans

»Ýdalir« gefällt bisher niemandem.