Höndin sem veggina klórar Songtext
von Skálmöld
Höndin sem veggina klórar Songtext
Tunglskinsbjört nóttin er tökum náðir.
Tveir liggja bræður og sofa báðir,
Móðirin vakir og ljósið líður,
Lognið er forleikur þess sem bíður.
Fjórtán á bænum, við brunnum inni,
Börnin í fangi á ömmu sinni.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Mannleysa og ber að baki,
Bræðralaus og einskis maki.
Lögðum eld að þínu þaki.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Haf- er yfir horfði örn
Herinn sá við Bæjartjörn.
Saklaus inni brunnu börn.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Sonur minn vaknaði aldrei aftur,
Ekki komst dóttir mín litla á legg.
Brunninn var fótur og brostinn kraftur,
Bærinn féll saman og á mig raftur.
Þá á mig sóttu loks þvogl og órar,
þarna ég dó undir baðstofuvegg.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.
Sólin rís á ný og sýnir okkur bæinn,
Suðar yfir mý og litar ferskan blæinn.
Ekkert líf að sjá og aldrei mun ég vakna,
Enginn segir frá og hvers er þá að sakna?
Sólin rís á ný og sýnir okkur bæinn,
Suðar yfir mý og litar ferskan blæinn.
Ekkert líf að sjá og aldrei mun ég vakna,
Enginn segir frá ...
Enginn segir frá ...
Enginn segir frá ...
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.
Tveir liggja bræður og sofa báðir,
Móðirin vakir og ljósið líður,
Lognið er forleikur þess sem bíður.
Fjórtán á bænum, við brunnum inni,
Börnin í fangi á ömmu sinni.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Mannleysa og ber að baki,
Bræðralaus og einskis maki.
Lögðum eld að þínu þaki.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Haf- er yfir horfði örn
Herinn sá við Bæjartjörn.
Saklaus inni brunnu börn.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Sonur minn vaknaði aldrei aftur,
Ekki komst dóttir mín litla á legg.
Brunninn var fótur og brostinn kraftur,
Bærinn féll saman og á mig raftur.
Þá á mig sóttu loks þvogl og órar,
þarna ég dó undir baðstofuvegg.
Fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar,
Lítil er höndin sem veggina klórar.
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.
Sólin rís á ný og sýnir okkur bæinn,
Suðar yfir mý og litar ferskan blæinn.
Ekkert líf að sjá og aldrei mun ég vakna,
Enginn segir frá og hvers er þá að sakna?
Sólin rís á ný og sýnir okkur bæinn,
Suðar yfir mý og litar ferskan blæinn.
Ekkert líf að sjá og aldrei mun ég vakna,
Enginn segir frá ...
Enginn segir frá ...
Enginn segir frá ...
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.
Sviðnar hönd og hold.
Hitnar undir mold.
Eldur brennir bein,
Bræðir óskastein.
Writer(s): snæbjörn ragnarsson, gunnar benediktsson, þráinn árni baldvinsson, björgvin sigurðsson, jon geir johannsson, baldur ragnarsson Lyrics powered by www.musixmatch.com