Songtexte.com Drucklogo

Fannfergi hugans Songtext
von Sálin Hans Jóns Míns

Fannfergi hugans Songtext

Hún er silki og stál.
Hún er stórsjór og bál.
Hún er allt mitt í hendi. Hún er hjarta míns mál.

Þegar heimur og drótt
Höfðu loks um sig hljótt,
í fannfergi hugans ég fann han′í nótt.

Það var dimmt, það var dögg,
Og í dreyranum lögg.
En ég fann hvernig hjartað sló högg eftir högg.
Þar sem áður var tóm,
Eru nú aðeins blóm.
Í kuldanum ástin, hún kvað upp sinn dóm.

Það er ólýsanlegt,
Já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er
Hversu hreint ótrúleg.
Hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér!


Það var hvasst úfinn sær.
Það var nýfallinn snær.
Þó var innra með mér aðeins andvari vær.
Já, ég vissi sem var
Og ég skynjaði þar
í mjöllinni hitann sem með sér hún bar.

Það er ólýsanlegt,
Já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er,
Hversu hreint ótrúleg,
Hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér.

Dag eftir dag eftir dag
Eru óteljandi sálir sárar víst.
Dag eftir dag eftir dag
Hverfur sól en síðan styttir upp.
Styttir upp á ný.

— Sóló —

Það er ólýsanlegt,
Já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er.
Hversu hreint ótrúleg.
Hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér.


Nú er dagur á ný,
En í kvöld aftur sný,
ég til fundar við þig þar í rökkrinu því.
Þegar heimur og drótt,
Höfðu loks um sig hljótt.
Í fannfergi hugans ég fann þig í nótt.
Í fannfergi hugans ég fann þig í nótt.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Sálin Hans Jóns Míns

Fans

»Fannfergi hugans« gefällt bisher niemandem.