Songtexte.com Drucklogo

Auður Songtext
von Sálin Hans Jóns Míns

Auður Songtext

Enginn verður óbarinn biskup – eða hvað?
Ertu eitthvað aumur? Ó amar eitthvað að? Ó ó,
Liggur undir feldi í nótt.
Liggur bara og talar,
En lætur ekki neitt.
Hvenær ertu til fyrir mig?
Hvurslags eiginlega,
Hvaða brögðum get ég beitt?
"Enginn verður óbarinn biskup", segir þú.
"Enginn nær í rekkjunaut eftir klukkan þrjú". Ó nei.
Auður er undarleg. Svo er nú það.
Sendu henni línu ef eitthvað er að.
Alltaf er Auður á undan með flest.
Reyndu ekki að setjast á of háan hest,


því hún sér við þér.
Reyndu ekki að mæla undir rós. áhh
Reyndu ekki að rengja
það sem Auður leggur til.
Sjá – og þú munt halda það út.
Og seinna færðu sannreynt
Að það verður þér í vil.
"Enginn verður óbarinn biskup", segir hún.
"Enginn reisir fangelsismúr úr æðadún".
Auður er undarleg. Svo er nú það.
Sendu henni línu ef eitthvað er að.
Alltaf er Auður á undan með flest.
Reyndu ekki að setjast á of háan hest,
því hún sér við þér.

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Sálin Hans Jóns Míns

Fans

»Auður« gefällt bisher niemandem.