Songtexte.com Drucklogo

Strákarnir stofnuðu hljómsveit Songtext
von Nýdönsk

Strákarnir stofnuðu hljómsveit Songtext

Sören, Palle, Knud og jeg stofnuðum hljómsveit.
Það var þykkni og þoka á Þykkvabæjaströndum á kvöldin.
Með páku og poka og þriggjahljómaþrígrip að þeysa
á kartöfluslóðir við sveitunga svera að keppa.
Í kapphlaupi við tímann og klukkuna á Hvoli við keyrðum.
Í leynimúla við lokkandi ljósamynstur.
:,: Splæst var á línuna sóda-poppi og pylsum:,:
Viðlag:
Strákarnir stofnuðu hljómsveit.
Þeir gengu bar′ allt of langt.


Á leiðinni miðri mótormaskínan mæddist
nú þykkbotna skó á brauðfætur fast voru bundnir.
Gengum hvar Göngu-Hrólfur hrasaði forðum
og séra Þangbrandur þrumaði í krossfara kristnum orðum.
Viðlag...
Snögglega snældunni snérum við snarlega við
í fimbulfögrum fjallasal við sáum
hvar Rúnar rösklega með rafmagnsgígjuna reið
og beljandi bassinn og tromman frá Bárðadal bárust.
Viðlag...

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Fans

»Strákarnir stofnuðu hljómsveit« gefällt bisher niemandem.