Songtexte.com Drucklogo

Andlitsbókhaldið Songtext
von Nýdönsk

Andlitsbókhaldið Songtext

Um leið og ég vakna
Ég sest upp og sakna
Vina minna og allra hinna
Óteljandi mismunandi andlitanna

Ég lýsi mig sekan
Um að láta allt reka
Á reiðanum og eyða öllum mínum
Tíma í afþreyinga sýndarheimi

Ásjóna mín er
Opin og ber
Ég sýni þér
Mitt rétta andlit

Þú svona lokuð og þver
En svipurinn
Er fullkominn
Í andlitsbókhaldið


Ég engist og iða
Í angist og sviða
Í einskismannslandi
Í fjarskanámi sýndarveruleikafjarsambandi

Á alnetsins enda
Ég ætla að senda
Fyrirspurnarbeiðni um það að
Brúa bilið milli okkar beggja

Ásjóna mín er
Opin og ber
Sýni þér
Mitt rétta andlit

Þú svona lokuð og þver
En svipurinn
Er fullkominn
Í andlitsbókhald


Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)
Ah (ah)

Ég hefði haldið
Að andlitbókshaldið
Léti mér leiðast þó mér langaði að
Koma aftur heim í veruleikann

Heim
Veruleikaheim
Heim til þín
Heim til þín

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Fans

»Andlitsbókhaldið« gefällt bisher niemandem.