Songtexte.com Drucklogo

101 Ósómi Songtext
von Moses Hightower

101 Ósómi Songtext

Gæfan er svo fallvölt,
gleðin er svo naum,
veröldin er grimm,
og óárennileg...
hamingjan er stopul,
og mannskeppnan er aum,
veðráttan er vond,
og verstur allra er ég...
en lítum framhjá því,
þá held ég ekkert mæli mótí því,
ekkert sem mig rekur minni í,
ekki neitt
að slaka aðeins á,
þó að veröldin sé fjandsamleg,
við skulum taka lítinn laugarveg,
ertu með
ástin er svo harðhennt,
það hendir okkur flest,
og virkilega grátlegt,
hvernig stundum fer


já gæfan er oft fallvölt
og veröldin svo grimm
en mér sýnist hún samt skárri
á rúntinum... með þér...
en veistu hvað mér finnst
ég held að ekkert mæli móti því
ekkert sem mig rekur minnið í
ekki neitt
að slaka aðeins á,
þó að veröldin sé fjandsamleg,
við skulum taka lítinn laugarveg,
ertu með
og veistu hvað mér finnst
ég held að ekkert mæli móti því
ekkert sem mig rekur minnið í
ekki neitt
að slaka aðeins á,
þó að veröldin sé fjandsamleg,
við skulum taka lítinn laugarveg,
ertu með

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Moses Hightower

Fans

»101 Ósómi« gefällt bisher niemandem.