Ég byggði dyr í eyðimörkinni Songtext
von Misþyrming
Ég byggði dyr í eyðimörkinni Songtext
Ég byggði dyr í eyðimörkinni,
Reisti þær í buska.
Glæsilegar úr hlyn,
Skreyttar blómamynstri:
Liljur og rósir
Vafðar saman
í fléttum,
Spíral,
Gullnu sniði
Og náttúruformum sem hafa ekki nafn.
Langt í fjarska
í braut frá öllu
Stóðu dyrnar
Stórar, yfirþyrmandi.
Læstar.
En ekki hafði ég lykilinn.
Mikið ofboðslega langaði mig í gegn.
Ég ráfaði um eyðimörkina ráðlaus,
Dögum, vikum saman.
Sólin, sandurinn og heitur vindurinn
Tættu mig.
Óbærileg var mér sú ferð,
þar til ég loks fann lykilinn.
Þá fylltist ég vonarlosta.
Ég spratt af stað
Lengst út í buska
En dyrnar voru hvergi,
Líkt og þær hafi aldrei verið reistar.
Reisti þær í buska.
Glæsilegar úr hlyn,
Skreyttar blómamynstri:
Liljur og rósir
Vafðar saman
í fléttum,
Spíral,
Gullnu sniði
Og náttúruformum sem hafa ekki nafn.
Langt í fjarska
í braut frá öllu
Stóðu dyrnar
Stórar, yfirþyrmandi.
Læstar.
En ekki hafði ég lykilinn.
Mikið ofboðslega langaði mig í gegn.
Ég ráfaði um eyðimörkina ráðlaus,
Dögum, vikum saman.
Sólin, sandurinn og heitur vindurinn
Tættu mig.
Óbærileg var mér sú ferð,
þar til ég loks fann lykilinn.
Þá fylltist ég vonarlosta.
Ég spratt af stað
Lengst út í buska
En dyrnar voru hvergi,
Líkt og þær hafi aldrei verið reistar.
Writer(s): D.g. Lyrics powered by www.musixmatch.com