Songtexte.com Drucklogo

Ég er afi minn Songtext
von Laddi

Ég er afi minn Songtext

Já þú trúir ei glatt
En ég segi það satt
Að ég er afi minn

Ég er afi minn
Ég er afi minn
Já þú trúir ei glatt
En ég segi það satt
Að ég er afi minn

Fyrir ótal mörgum árum þegar ég var tuttugu og eins
Ég var giftur ungri ekkju sem var kölluð Lilla Sveins
Hún átti unga dóttur sem var alls ekki svo ljót
Og pabbi minn varð ástfanginn og giftist þeirri snót

Þetta varð til þess að nú er pabbi tengdasonur minn
Og dóttir mín varð konan hans og var því móðir mín
Þetta var nú orðið nokkuð flókið sem er von
Og ekki var það betra er ég eignaðist svo son


Því litli snáðinn var nú orðinn mágur afa míns
Og var því orðinn nokkurs konar frændi pabba síns
En þar sem hann var frændi minn
Þá var hann líka bróðir minn
Og frænka hans sem var dóttir mín
Var orðin tengdamóðir mín

Ég er afi minn
Ég er afi minn
Já þú trúir ei glatt
En ég segi það satt
Að ég er afi minn

Svo eignuðust þau son
Einn daginn pabbi og dóttir mín
Sem gerir það að verkum að ég er afi bróður míns
Og konan mín er orðin núna móður móðir mín
Sem leiðir það af sér að hún er orðin amma mín

Ég er afi minn
Ég er afi minn
Já þú trúir ei glatt
En ég segi það satt
Að ég er afi minn

Ef konan mín er amma mín þá er ég barna barn
Og ég get ekkert gert af því þó ég sé eigingjarn
En ég er sennilega alveg einstakt tilfelli
Að vera giftur ömmu sinni er merki um elli


Ég er afi minn
Ég er afi minn
Já þú trúir ei glatt
En ég segi það satt
Að ég er afi minn

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Beliebte Songtexte
von Laddi

Quiz
Welcher Song kommt von Passenger?

Fans

»Ég er afi minn« gefällt bisher niemandem.