Songtexte.com Drucklogo

Ísland er land þitt Songtext
von Islandica

Ísland er land þitt Songtext

Ísland er land þitt og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér hvar sem þú ferð
Ísland er landið sem ungan þig dreymir
Ísland í vonanna birtu þú sérð

Ísland í sumarsins algræna skrúði
Ísland með blikandi norðljósa traf
Ísland er feðranna afrekum hlúði
Ísland er foldin sem lífið þér gaf

Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull
Íslensk, sú lind sem um æðar þér streymir
Íslensk er vonin, af bjartsýni full


Íslensk er vornóttin albjört sem dagur
Íslensk er lundin með karlmennsku þor
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur
Íslensk er trúin á frelsisins vor

Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma
Íslandi helgar þú krafta og starf
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
Íslenska tungu, hinn dýrasta arf

Íslend sé blessað um aldanna raðir
Íslenska foldin sem lífið þér gaf
Ísland sé falið þér, eilífi faðir
Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf

Ísland sé falið þér, eilífi faðir
Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf

Songtext kommentieren

Log dich ein um einen Eintrag zu schreiben.
Schreibe den ersten Kommentar!

Quiz
Cro nimmt es meistens ...?

Fans

»Ísland er land þitt« gefällt bisher niemandem.